Betra er seint en aldrei seigir máltækið svo ég ætla kom með
færslu af síðastliðnum vikum.
Ég ætla að minnsta kosti að reyna að muna hvað ég hef verið að gera, erfitt þegar maður
er drukkinn allan tímann , neinei seigi svona.
Helgina eftir Frakklands ferðina var heitið til Blackpool þar sem við
fórum 5 stelpur , þessi staður er talinn besta djamm pleis englands sem er
sannarlega að standa undir nafni því þetta var alveg geðveik ferð , við keyrðum
fundum staðinn án nokkurra fyrirhafna, nema hvað þegar við komum þá var haldið
á stað að finna hotel, ég get nú verið pínu snobb og útilokaði eitt hotel um
leið þar sem kall kom við afgreyðslu og við vorum aðeins þrjár af okkur og spurðum um herbergi og við værum
fimm saman, og hann sagði því miður þá væri allt fullt hjá sér, og við sættum
okkur við það, nema hvað þegar við vorum að labba út þá seigir hann, ,,eruði
fimm stelpur,,? Já ? jájájájá heyrðu við erum með herbergi og svo er
morgunmatur og allt ekki málið elskurnar.. uhh ég helt nú ekki!! Sögðum að við kæmum við á eftir ,,já nei,, ég var frekar óþolinmóð , bjórinn beið óþolinmæði er eitthvað sem einkennir íslendinga held ég. Við
loksins fundum fínt hotel frekar heimilislegt en mjög nice, við komum okkur
fyrir og heldum svo á stað í smá verslunar leiðangur þar sem við keyftum okkur
allar eins skó í misjöfnum skærum lítum fyrir kvöldið.
Eftir það fórum við í supermarket og keyftum svolítið áfengi sem við ætluðum að
drekka meðan við tækjum okkur til um kvöldið, fórum svo og fengum okkur að
borða því ég tuðaði alla leiðina hvað ég væri svöng ,,ég er alltaf svöng hugsa
að heiðdís viti það best af öllum; ) enda er hún lagin við að halda mér góðri
og elda dírindis mat.
Eftir það fórum við uppá hotelið góða og tókum okkur til, mjög nice strákur sem
var að aðstoða okkur þar sem við vorum með smá vesen, en hugsa að hann hafi
bara fílað það í botn að hjálpa okkur hehe!
Við fórum út um 8 leitið á pub og þá var lífið aldeilis byrjað í bænum, við
röltum á milli og prufuðum allt, spurðum nú fyrst mann hvar aðal djamm pleisið
væri svo, hann labbaði með okkur og syndi okkur það helsta, það er stærsti club
í englandi í blackpool og við fórum þangað sem var alveg geðveikt, á 5 hæðum ,
þrjú risa dansgólf og bara ogeðslega flott heyrði útundan mér að það væri um
5000 manns þar . Allvega við sáum fullt af skrítnu liði og enskir menn eru svo lítið
slæmir , ég fór út í nokkrar mín og þegar ég kom aftur inn með nokkrar rósir og
bangsa og fleyra dót !!
Við fórum heim um fjögur leitið þar sem við villtumst aðeins á leið við
löbbuðum með tveim strákum sem eru frá Manchester þeir fundu ekki hotelið heldur
og eftir þrjá taxa og langt labb fundum við hotelin og við fyndna tilviljun þá
voru hotelin okkar á móti hvort öðru !
Daginn eftir vöknuðum við grút timbraðar en skelltum okkur nú samt í bæinn og
versluðum smá , fórum á vaxmyndasafn og í blackpool tower sem er ekki hugsaður
fyrir timbrað fólk!
Svo heldum við á leið og john og mary voru glöð að sjá mig þar sem þau voru
ekkert smá hrædd að ég væri að fara til BLACKPOOL.
Síðustu helgi þá fór ég út með john og vinafólki þeirra mary var svo þreytt,
það var rosalega gaman! Ég hitti vin og mann sem sér um ýmislegt fyrir Ronaldo
enda planið okkar johns er að ég næli
mér í hann ; )
En rétt hjá þar sem við búum eiga
flestir fótbolta mennirnir heima og fara alltaf á nokkra staði sem eru í sömu
götu sem bara mjög ríkt fólk fer á, við john og mary ætlum fljótlega þangað. Á
laugardeiginum fór ég til Manchester í trafford center í bíó og á bar , fór svo
heim þar sem var party og ekki búnar nema um 11 flöskur af kampavín og nokkrar
af rósavín, Mary var dauð uppí sófa og vinkona hennar á gólfinu og þær heldust
í hendur ! Ég hugsa að ég hafi drukkið of mikið því þegar allir voru farnir
heim og ég fór uppí herbergið mitt á klósettið, minnir að ég hafi lagst upp í
rúmið ég man það ekki, ég man bar að ég var að labba um og sá bara svart og var
alveg að deyja og ég var að þreifa eftir rúmi til að drepast í! Svo kl 10 um
morguninn vakna ég á hæðinni fyrir ofan mig í Charlies herbergi í hans rúmi!
(Charlie er 11 ára strákurinn í fjölskyldunni) hann er með tvö einbreið rúm í hans
herbergi og ég vaknaði uppí hans rúmi en ég hafði takið sængina úr hinu rúminu
og var með hana hehe. Svo vaknar hann og dettur út úr rúminu honum brá svo hehe
ég snéri mér bara við og helt áfram að sofa! Við erum búin að hlægja svo af
þessu enda sagði John ég frétti að þú hefðir vaknað með einhverri gellu í nótt
, þú verður að seigja vinum þínum frá þessu þegar hún labbar með þér í skólann
næst, að þú hafi vaknað með þessari á laugardaginn !! heheh
Á sunnudaginn var aldeilis djammað líka, fórum út að borða fjölsyldan og Magda
vinkona úr næsta húsi kom með okkur, svo fór mary og krakkarnir heim og ég john
, magda og Nathan sem er sonur vin Johns sem á fyrirtæki með honum á bar sem
var live tónlist og svona voða fínt, þar var drukkið til að verða um þrjú og
eftir tvo tíma var borðið orðið fullt af tómum skot glösum !!!! held það heiti
nipples , beilys og eitthvað , mjög gott.
Við lendum í brjáluðum manni sem var að reyna við Mögdu fyrir framan kærustuna
sína og magda hunsaði hann og hann var með einhverja stæla svo john tók til
sinna ráða sem var alls ekki svo gáfulegt og urðu þar heljarinnar fætingur, en
Nathan stoppaði það alveg af við Magda sátum bara inni og drukkum bjórinn okkar
og horfðum út um gluggan, svo var reyndar kona á fertugsaldri með þvílikt vesen
við mig hef ekki hugmynd um afhverju, en hugsa að hún hafi bara verið svona
rosalega drukkin. !
Í dag er ég að fara í klippingu og litun og svona, byrjuð á fullu í ræktinni en
allur þessi bjór kemur upp á móti og út að borða 4 sinnum í viku !, ég er búin
að vera hér í rúmar 6 vikur og tveir dagar án neins áfengis.
Svo á morgun er ég aftur að fara til frönsku alpana á sama stað í þrjá daga ,
get ekki beðið alveg sjúkt að vera á snjóbretti allan daginn drekka kampavín og
fara út um kvöldið, nema leitt að frakkar kunna ekki stakt orð í ensku eða
voðalega fáir ! svo samræðurnar eru hálfgert táknmál við frakkana, kem með
ferðasögu ef ég man eftir einhverju úr ferðinni hehe (vonandi að ég sé ekki að
gera ættinga mína hrædda).
Ég er byrjuð að keyra alveg á fullu er með lítinn bíl hér fyrir mig en ég get
tekið benzinn sem ég vil þar sem það er gps tæki í honum sem er gott, ég er
búin að keyra til manchester , stoke , macclesfield alveg ein , rosalega stolt
af mér
svo er ég nottlega alveg að meika það í breskunni.
Hvernig væri svo að þið á klakanum mynduð kvitta örlítið ha ! J
Myndir á Myspace.com/kristrunosp
Kveð að sinni